Veröld/Fólk
| mbl
| 9.2.2012
| 22:27
Kvikmyndahátíðin í Berlín sett
Þrátt fyrir snjó og kulda fór kvikmyndahátíðin í Berlín vel af stað í dag, en þetta er í 62. skiptið sem hún er haldin. Meðal þeirra sem voru viðstaddir opnunarmyndina, Farewell My Queen, var þýska leikkonan og fyrirsætan Diana Kruger. Hátíðin stendur til 19. febrúar.
Meðal annarra frétta af fræga fólkinu má nefna, að Heather Mills, fyrrverandi eiginkona Bítilsins Pauls McCartneys, greindi frá því við skýrslutökur vegna hleranamálsins í Bretlandi að blaðamaður hefði komist yfir fjölda skilaboða sem Bítillinn sendi henni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









