Óttast eltihrelli
Kylie Minogue hefur neyðst til að snúa sér til lögreglunnar vegna hótana sem henni hafa borist frá ókunnugum manni á Twitter. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem söngkonan þarf að eiga við eltihrelli. Árið 2010 birti ástralskt dagblað mynd af manni sem hélt til í grennd við hús foreldra hennar í Melbourne og var hann iðulega með trúlofunarhring í gjafaöskju og blómvönd í hendinni, að því er fram kom í Daily Mail.
Minogue skýrði Twitter-vinum sínum, alls um milljón talsins, frá nýja eltihrellinum sem brugðust við hver af öðrum og sendu henni hlý hvatningarorð. Virðist maðurinn sem um ræðir hafa sent söngkonunni alvarlegar hótanir á Twitter en ekki hefur verið upplýst hvers eðlis þær eru, að því er segir á vef þýska fréttatímaritsins Spiegel.
Sá sem sat fyrir Minogue árið 2010 reyndist vera fyrrverandi póstburðarmaður að nafni Mark Taylor. Í ljós kom að hann hafði elt aðrar stórstjörnur á röndum, þar með talið Jennifer Aniston og Lily Allen. Minogue fékk dæmt nálgunarbann á Taylor en eftir er að sjá til hvaða aðgerða hún þarf nú að grípa vegna nýja eltihrellisins.









