Þreyttur á þrasinu í Kate

Vilhjálmur prins einn með sjálfum sér.

Vilhjálmur prins einn með sjálfum sér. mbl.is

Vilhjálmur Bretaprins er orðinn býsna þreyttur á stjórnsemi verðandi Bretlandsdrottningar, eiginkonu sinnar Kate Middleton, hertogaynju af Cambridge. Vilhjálmur og Kate gengu sem kunnugt er í hjónaband síðastliðið vor en nú virðist sem mesta sælan sé á enda. Undanfarið hefur kastast oft í kekki á milli þeirra sökum þess að Kate má helst ekki missa prinsinn úr augsýn og vill alltaf vera með honum.

Prinsessan af Cambridge þolir ekki þegar prinsinn þarf að sinna öðrum málum og skilur hana eftir eina heima, að því er haft er eftir nánum vini þeirra beggja á vef OK! Hún vill að sögn vera með honum allan sólarhringinn en Vilhjálmur hefur þörf fyrir meira svigrúm og finnst nauðsynlegt að hafa tíma út af fyrir sig.

Bretaprins fær nú kærkomið frí frá hjónbandsþrasinu því hann er floginn til Falklandseyja þar sem hann hyggst dvelja næstu sex vikurnar, ásamt félögum sínum í áhöfn björgunarþyrlu á vegum breska flughersins.

Vilhjálmur prins og Kate Middleton, glöð á góðri stund.

Vilhjálmur prins og Kate Middleton, glöð á góðri stund. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is