Tilbúin að sættast við föður sinn
Christina Aguilera mátti ásamt móður sinni þola barsmíðar af hendi föður hennar og hefur eytt mörgum árum í að byggja sig upp andlega eftir hryllinginn í æsku. Söngkonan hefur af þeim sökum ekki talað við föður sinn í tólf ár en er nú til í að taka aftur upp samband við hann, þrátt fyrir það sem á undan er gengið.
Aguilera tók ákvörðun þegar hún var 19 ára gömul að slíta öllum samskiptum við föður sinn. Móðir hennar yfirgaf hann þegar dóttirin var aðeins fjögurra ára gömul en þá hafði hann ítrekað gengið í skrokk á þeim báðum. Nú finnst söngkonunni að kominn sé tími til að reyna að gleyma fortíðinni, horfa fram á veginn og taka upp samskipti við föður sinn, að því er haft er eftir henni í tímaritinu Latina.
Aguilera skildi við eiginmann sinn, Jordan Bratman, árið 2010 eftir fimm ára hjónaband en þau eiga saman þriggja ára gamlan son, Max. Hún er nú í sambandi við Matthew Ruttler en hann starfar við kvikmyndaframleiðslu.









