Watts leikur Díönu prinsessu

Mynd 1 af 2
Ástralska leikkonan Naomi Watts. Reuters

Leikkonan Naomi Watts mun leika Díönu prinsessu í nýrri kvikmynd sem er sögð fjalla um ástarsamband hennar við hjartaskurðlækninn Hasnat Khan.

Fram kemur á vef breska útvarpsins að þau hafi átt í leynilegu ástarsambandi sem hófst árið 1995 og lauk skömmu áður en hún lést í ágúst árið 1997.

Oliver Hirschbiegel leikstýrir myndinni sem heitir Caught in Flight.

Watts segir að það sé heiður að fá að leika Díönu. „Díana prinsessa var elskuð um allan heim, og ég hlakka til að mæta þeirri áskorun að leika hana á hvíta tjaldinu,“ segir leikkonan.

Hirschbiegel hefur m.a. leikstýrt kvikmyndinni Der Untergang frá árinu 2004. Hún fjallar um síðustu daga nasistaleiðtogans Adolfs Hitlers. Hann segir að Watts sé einstök leikkona og kjörin í hlutverkið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is