|
Monitor
| mbl
| 10.2.2012
| 10:51
Ástfangin á sviðinu
Þetta árið setur Verzlunarskólinn upp söngleikinn sígilda um Bugsy Malone. Víðir Þór og Ólöf Kristín fara með aðalhlutverk í sýningunni sem sýnd er í Austurbæ.
Um hvað er leikritið? Ó: Í grófum dráttum er það um Bugsy Malone og hvernig hann hjálpar Samma feita að losa sig úr klípunni sem hann kom sér í við Siggu sækó. Hann verður hrifinn af stelpu sem heitir Blousy Brown og vill fara með henni til Hollywood. V: Hún vill svo mikið verða söngkona og kvikmyndaleikkona. Hann vinnur sér því inn pening hjá Samma. Ó: Þannig að þetta er svona lítil ástarsaga líka.
Hvernig týpur eru persónurnar ykkar í sýningunni? Ó: Blousy er svolítið dramatísk. Hún vill virðast sterk og hörð þó hún sé mjög ljúf inn við beinið. Hún dregur upp klærnar þegar hún vill ekki verða særð. V: Bugsy er fátækur kvennabósi sem er góður með sig. Hann er góður við stelpurnar og hefur gaman af athyglinni frá þeim.
Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.









