Eltihrellir Madonnu handtekinn

Robert Dewey Hoskins. stækka

Robert Dewey Hoskins. AP

Lögreglan í Los Angeles handtók í dag mann sem strauk af geðsjúkrahúsi  í síðustu viku og er dæmdur fyrir að hafa í hótunum við söngkonuna Madonnu.

Robert Dewey Hoskins var dæmdur í 10 ára fangelsi árið 1996. Hann dvaldi um tíma á öðru sjúkrahúsi eftir að hann losnaði úr betrunarvistinni. Í júlí í fyrra var hann handtekinn og vistaður á geðsjúkrahúsi í Norwalk. Hann náði að strjúka þaðan í síðustu viku.

Madonna sagði við réttarhöldin árið 1996 að hún hefði haft martraðir eftir að hún sá hann nærri heimili sínu árið 1995.

Lífvörður söngkonunnar sagði við hana að Hoskins hefði haldið því fram að Madonna ætti að vera eiginkonan sín. Ef hún vildi það ekki hótaði hann að skera hana á háls.

Síðar á árinu 1995 klifraði Hoskins yfir vegg við heimili Madonnu í Hollywood Hills og stökk ofan í sundlaugina hennar. Atvikið endaði með því að öryggisvörður særði Hoskins með því að skjóta hann tvisvar. Madonna var stödd í Flórída þegar þetta gerðist.

Madonna varpar eflaust öndinni léttar.

Madonna varpar eflaust öndinni léttar. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is