Eltihrellir Madonnu strauk af geðsjúkrahúsi
Karlmaður sem var dæmdur fyrir að hrella og hafa í hótunum við bandarísku poppsöngkonuna Madonnu hefur strokið af geðsjúkrahúsi. Þetta segir lögreglan í Los Angeles.
Robert Dewey Hoskins var dæmdur í 10 ára fangelsi árið 1996. Hann dvaldi um tíma á öðru sjúkrahúsi eftir að hann losnaði úr steininum. Í júlí í fyrra var hann handtekinn og vistaður á geðsjúkrahúsi í Norwalk. Hann náði að strjúka þaðan í dag, að því er fram kemur á vef BBC.
Lögreglan segir að Hoskins geti verið afar ofbeldisfullur og að fólk eigi alls ekki að nálgast hann. Hann glími við alvarlegan geðsjúkdóm og sé sérstaklega slæmur taki hann ekki lyfin sín.
Madonna sagði við réttarhöldin árið 1996 að hún hefði haft martraðir eftir að hún sá hann nærri heimili sínu árið 1995.
Lífvörður söngkonunnar sagði við hana að Hoskins hefði haldið því fram að Madonna ætti að vera eiginkonan sín. Ef hún vildi það ekki hótaði hann að skera hana á háls.
Síðar á árinu 1995 klifraði Hoskins yfir vegg við heimili Madonnu í Hollywood Hills og stökk ofan í sundlaugina hennar. Atvikið endaði með því að öryggisvörður særði Hoskins með því að skjóta hann tvisvar. Madonna var stödd í Flórída þegar þetta gerðist.









