Fallinn fyrir Carmen Electra

Simon Cowell. stækka

Simon Cowell. LUKE MACGREGOR

Simon Cowell er fallinn fyrir Carmen Electra en hann staðfesti nýlega að hann væri hættur með Mezghan Hussainy, að minnsta kosti í bili. Cowell fékk Baywatch-stjörnuna til að hlaupa í skarðið sem dómari í hæfileikaþættinum Britain's Got Talent fyrir Amöndu Holden sem eignaðist sitt annað barn í síðustu viku. Electra hefur fengið blendnar viðtökur meðal áhorfenda en Cowell er yfir sig hrifinn af nýju samstarfskonunni og getur ekki haft hendurnar af henni á meðan upptökum stendur.

Samkvæmt heimildamanni breska dagblaðsins Sun kom valið á nýja dómaranum fólki mjög á óvart en þegar hún birtist varð öllum fljótt ljóst af hverju hún var ráðin. Voru þau Cowell nánast óaðskiljanleg við upptökur á þriðjudag, létu vel hvort að öðru og hegðuðu sér eins og táningar. Þótti viðstöddum að sögn neyðarlegt að horfa upp á látalætin. Cowell dró ekki dul á aðdáun sína á sjónvarpsstjörnunni og skrifaði á Twitter að loknum vinnudegi: Carmen er ofsalega sæt.

Carmen Electra er hrifin af myndavélum.

Carmen Electra er hrifin af myndavélum. AP

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is