Flýr stórhættulegan eltihrelli

Halle Berry. stækka

Halle Berry. mbl.is/Cover Media

Halle Berry er skelfingu lostin eftir að ellihrellirinn Robert Hoskins, sem áður gerði Madonnu lífið leitt, strauk af geðsjúkrahúsi í byrjun vikunnar. Hoskins hefur hótað því að gera Berry að næsta fórnarlambi sínu og hefur leikkonan ákveðið að flytja í skyndi til Frakklands ásamt unnustanum Olivier Martinez og þriggja ára gamalli dóttur sinni, Nahla.

Berry, sem á í forræðisdeilu við barnsföður sinn og fyrrverandi unnusta, Gabriel Aubry, hefur sótt um leyfi til yfirvalda að fara með dótturina úr landi eins fljótt og auðið er. Leikkonan hefur ærna ástæðu til að óttast Hoskins því hann er sagður mjög veikur á geði og ofbeldisfullur og til alls líklegur ef hann tekur ekki lyfin sín. Hoskins ofsótti Madonnu um langa hríð og var dæmdur til tíu ára vistar, fyrst í fangelsi en síðar á geðsjúkrahúsi. Hann slapp af geðdeild á þriðjudag og er talið að hann muni nú leita Berry uppi.

Samkvæmt heimildarmanni Radar Online hafa lögregluyfirvöld í Los Angeles tilkynnt Berry að Hoskins hafi haft uppi líflátshótanir í garð hennar og eru í stöðugu sambandi við hana. Hún er að sögn mjög hrædd og lætur vakta heimili sitt allan sólarhringinn. Óttast vinir leikkonunnar um öryggi hennar enda er Hoskins jafnan vopnaður bæði byssu og hníf.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is