Keppa fyrir Ísland í Stora Daldansen
Félag íslenskra listdansara (Fíld) stóð fyrir íslenskri undankeppni fyrir Stora Daldansen sem er norræn/baltnesk sólóballettkeppni haldin árlega í Svíþjóð í vikunni.
Sigurvegarar keppninnar að þessu sinni voru Ellen Margrét Bæhrenz 1. sæti, Þórey Birgisdóttir 2. sæti og Karl Friðrik Hjaltason 3. sæti en þau eru öll nemendur við Listdansskóla Íslands.
Ellen dansaði sóló úr ballettinum Paquita, Þórey sóló úr Le Corsaire og Karl Friðrik dansaði sóló úr Flammes de Paris.
Þessi þrjú fara svo til Falun í Svíþjóð í mars og keppa fyrir Íslands hönd í Stora Daldansen en þess má geta að bæði Karl Friðrik og Ellen hafa tekið þátt í þeirri keppni áður, segir í tilkynningu.
Að þessu sinni tóku þátt 11 keppendur á aldrinum 16-19 ára, en þeir komu frá tveimur skólum, Ballettskóla Guðbjargar Björgvinsdóttur og Listdansskóla Íslands.
Allir keppendur fengu viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna og sigurvegararnir verðlaunagripi, ásamt 40 þúsund króna ferðastyrk úr minningarsjóði Svandísar Þulu Ásgeirsdóttur en sjóðurinn var stofnaður 2. desember 2008 þegar tvö ár voru liðin frá því Svandís lést í bílslysi aðeins 5 ára gömul.
Með minningarsjóðnum vill fjölskylda Svandísar Þulu þakka samfélaginu fyrir þann stuðning sem þau fundu fyrir eftir slysið. Minningarsjóðurinn styrkir meðal annars unga ballettdansara en Svandís Þula hafði stundað ballettnám í Ballettskóla Eddu Scheving í rúm tvö ár áður en hún lést.
Með keppninni vill Félag íslenskra listdansara skora á íslenska listdansnema og ýta undir áhuga á klassískum ballett. Þátttökurétt í undankeppnina hafa listdansnemar í öllum listdansskólum innan Félags íslenskra listdansara.









