Koníak úr frönsku byltingunni til sölu
Vín úr frönsku byltingunni er nú til sölu. Reuter
Hollenskur safnari setti þúsundir flaskna af fágætu koníaki og öðrum veigum í sölu í dag. Sumar flöskurnar eru frá tíma frönsku byltingarinnar. Áætlað er að heildarverðmæti þeirra sé nokkrar milljónir dollara.
Eigandinn Bay Van der Bunt segir að safnið sé veglegasta safn fágætra veiga í heiminum og að með sölunni sé hann að uppfylla loforð sem hann gaf eiginkonu sinni þess efnis að hann myndi selja safnið þegar hún færi á eftirlaun um 65 ára aldur.
Van der Bunt, sem erfði safnið að hluta til frá afa sínum og föður, á ekki börn.
Í safninu er meðal annars að finna sex lítra flösku af Brugerolle-koníaki frá árinu 1795, sem er talið hafa fylgt Napóleon Bónaparte á ferðum hans og þetta sé eina flaskan eftir sinnar tegundar.
Elsta koníakið, sem er frá árinu 1760, verður þó ekki sett í sölu.
Svo skemmtilega vill jafnframt til að Bay Van der Bunt er bindindismaður.









