Ljóshátíð á Suðurlandsbraut

Mynd 1 af 2
Framhliðin á Suðurlandsbraut 4 var lýst upp í gærkvöldi

Verkís verkfræðistofa fagnar 80 ára afmæli á árinu og lýsir af því tilefni upp starfsstöðvar sínar á nýjan hátt.  Leikurinn hófst í Reykjavík í gær en þá varð framhliðin á Suðurlandsbraut 4 að svokölluðum „tómum striga listarinnar“ þar sem listamenn sýndu Pixel Art-verk og notuðu til þess lýsingu í gluggum.

Í kvöld tekur við lýsing sem framkallar ýmiss konar áhrif og mun lifa áfram í skammdeginu fram á vor.

„Með þessu viljum við sýna fram á að þó að Verkís sé orðið 80 ára þá erum við hágæða þekkingarfyrirtæki sem er í góðum tengslum við þróun og tækninýjungar á öllum sviðum. Þetta sýnir einnig fram á að hægt er að tengja saman verkfræðiþekkingu, tækni og list, “ segir Sveinn Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri Verkís.

Einnig var kveikt á nýstárlegum„Aphrodite“-lampa á gafli Ármúla 6 en þeir eru þeir fyrstu sinnar tegundar á Íslandi og reyndar tvö fyrstu eintökin sem til eru í heiminum, segir í fréttatilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is