McCartney fékk stjörnu

Mynd 1 af 6
AP

Breski tónlistarmaðurinn Paul McCartney var heiðraður í Los Angeles í gær. Bítillinn fyrrverandi hefur nú bæst í hóp þeirra listamanna sem hafa fengið stjörnu í Frægðargötunni í Hollywood.

Mörg hundruð æstir aðdáendur fylgdust grannt með þegar McCartney svipti hulunni af stjörnunni við Hollywood Boulevard.

Athygli vekur að hann er fjórði og síðasti Bítillinn sem er heiðraður með þessum hætti. Þeir John Lennon, George Harrison og Ringo Starr hafa allir fengið stjörnu sem prýðir göngugötuna frægu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is