Munir úr Á hverfanda hveli brunnu

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli. stækka

Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í Á hverfanda hveli.

Talið er að munir úr kvikmyndinni Á hverfanda hveli, Gone With the Wind, hafi orðið eldi að bráð í fyrrinótt. Munirnir voru geymdir í safninu Vegurinn til Töru í Atlanta í Bandaríkjunum.

Eldur kom upp í safninu í nótt og óttast forstöðumaðurinn að mikið af mununum sem tengjast hinni ástsælu kvikmynd hafi eyðilagst af völdum elds, reyks eða vatns.

Kvikmyndin Á hverfanda hveli var frumsýnd árið 1939 og skartaði leikurunum Vivien Leigh og Clark Gable í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á sögu Margaret Mitchell.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is