Sagði Elmo búa yfir töframætti
Brúðan Elmo er í dálæti hjá mörgum. Líklega eru þó fæstir tilbúnir til að trúa því að Elmo búi yfir töframætti. Reuters
Taívanskur karlmaður er nú í haldi taívönsku lögreglunnar fyrir að hafa selt fólki dúkkur, sem hann sagði búa yfir töframætti. Um var að ræða brúður gerðar eftir persónum í Sesame Street sjónvarpsþáttunum.
Maðurinn mun þannig m.a. hafa ginnt kaupsýslumann nokkurn til að greiða sér þrjár milljónir taívanskra dollara, sem jafngildir rúmum tólf milljónum íslenskra króna, fyrir dúkku í líki Elmos, sem er aðdáendum Sesame Street að góðu kunnur, auk ýmissa annarra muna, sem allir áttu það sammerkt að búa yfir „sterkum töframætti“ og myndu þannig færa eigandanum gæfu.
Kaupsýslumaðurinn hafði sjálfur samband við lögreglu eftir að hann fór að renna grun í að hugsanlega gætu þarna hafa verið brögð í tafli.
Lögregla rannsakar nú feril mannsins, sem mun vera í forsvari fyrir trúarsöfnuð í norðurhluta Taívans.









