Skaut í sundur fartölvu dóttur sinnar

Tommy Jordan í myndbandinu. stækka

Tommy Jordan í myndbandinu. Skjáskot/Youtube

Myndband af bandarískum karlmanni sem refsar unglingsdóttur sinni með því að skjóta af skammbyssu á fartölvu hennar hefur vakið hörð viðbrögð á netinu og yfir tvær milljónir manna skoðað það á Youtube. Refsingin var tilkomin vegna færslu stúlkunnar á Facebook, þar sem hún kvartar yfir foreldrum sínum.

Maðurinn, Tommy Jordan, skýrir í myndbandinu að hann hafi verið ósáttur við færslu stúlkunnar, sem er fimmtán ára, og segir að refsingin sé til að kenna henni, og vinum hennar, lexíu.

Eftir að hafa skotið á fartölvuna segir Jordan: „Þú getur fengið nýja tölvu þegar þú kaupir þér nýja tölvu. Ég vona að þú hafir haft ánægju af tiltæki þínu á Facebook.“

Yfir fjörutíu þúsund manns hafa skrifað ummæli við myndbandið og sitt sýnist hverjum um uppeldisaðferðir Jordans. Sjón er sögu ríkari og má sjá myndbandið hér að neðan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is