Svanfríður í banastuði og hefur engu gleymt
40 ára afmælistónleikar hljómsveitarinnar Svanfríðar verða haldnir í Austurbæ hinn 14. apríl nk. Þar munu allir upprunalegu meðlimirnir koma saman, utan Péturs heitins Kristjánssonar söngvara, og fá þeir góða gesti með sér á svið.
Um sönginn sjá þeir Eiríkur Hauksson, Elvar Örn Friðriksson og Pétur Örn Guðmundsson.
Í umfjöllun um endurkomuna í Morgunblaðinu í dag segir Birgir Hrafnsson gítarleikari, að hann, Gunnar Hermannsson bassaleikari og Sigurður Karlsson trommuleikari hafi hist fyrir um ári og rætt hvort ekki ætti að halda upp á að 40 ár eru liðin síðan hljómsveitin var stofnuð og fyrsta og eina plata þeirra, What's hidden there?, kom út. „Seinnipart síðasta árs byrjuðum við að leggja drög að því að halda tónleika í apríl. Við byrjuðum að æfa í nóvember og hittumst núna alltaf vikulega og æfum.“









