|
Monitor
| mbl
| 10.2.2012
| 15:31
| Uppfært
23:17
Þetta er algjör hvirfilbylur
Elín Björnsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið enda situr hún í stjórn leikfélagsins í MH auk þess sem hún fer með stórt hlutverk í sýningunni Arkadíu sem verður frumsýnd á þriðjudaginn.
Um hvað er leikritið? Leikritið gerist á stóru sveitasetri, Sidley Park, í Englandi og þar er sagt frá heimilisfólkinu og vinum og vandamönnum á tveimur mismunandi tímum, tímabilinu 1809-1812 og svo í nútímanum. Í fortíðinni er sagt frá Thomasínu sem er að reyna að fá svör við öllu og fær hjálp frá einkakennara sínum til þess. Í nútímanum kemur svo Hanna Jarvis sem gestur á sama sveitasetur og hún vill komast að því hvað gerðist á tímum Thomasínu. Tímarnir tveir tvinnast mikið saman með öllum sínum ástum og örlögum.
Hver er meginmunurinn á þessum tímum? Klæðnaður og málfar er aðalmunurinn og svo virðist sem fólk í dag leyfi sér að vera með miklu meiri yfirgang.
Hvernig týpa er þinn karakter? Hanna er rithöfundur og mjög sjálfstæð kona sem lætur ekki vaða yfir sig. Hún er líka köld og hrokafull en er samt full af tilfinningum.
Þú ert líka í nefndinni sem skipuleggur leiksýninguna. Hvernig er það að vera svona báðum megin við tjöldin? Þetta er algjör hvirfilbylur. Það er svo mikið að gerast. En þetta er ótrúlega gaman og mikil og góð reynsla. Við höldum utan um leiklistarnámskeiðin í skólanum og svo vinnum við náið með leikstjóranum.
Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.









