Tortryggin á stefnumót á netinu
Rachel McAdams hefur upplýst að hún sé tortryggin á stefnumót á netinu. Leikkonan gekk jafnvel svo langt eitt sinn að stoppa vinkonu sína í því að fara út með manni sem hún komst í kynni við á stefnumótasíðu, enda óttaðist hún um öryggi hennar.
McAdams er varkár og finnst hugmyndin um að fara á stefnumót sem stofnað er til á netinu á þartilgerðum einkamálasíðum ekki góð. Í viðtali á kvikmyndavefnum Collider sagði leikkonan að hún hefði einu sinni ráðlagt vinkonu að hætta við áform um stefnumót með ókunnugum manni, enda hafði hún áhyggjur af því að honum væri ekki treystandi.
Leikkonunni fannst hugmyndin að stefnumótinu þar að auki fráleit en maðurinn hafði stungið upp á því að hann og vinkonan hittust á fyrirfram ákveðnum stað og færu í ratleik.









