Vill flytja til Frakklands
Halle Berry hefur uppi áform um að að flytjast til Frakklands ásamt unnustanum Olivier Martinez og þriggja ára dótturinni Nöhlu sem hún eignaðist með fyrrverandi kærasta sínum, Gabriel Aubry. Á því er þó einn hængur, barnsfaðirinn er langt í frá hrifinn af hugmyndinni.
Berry og Martinez dreymir um að flytja til heimalands hans en Aubry getur ekki hugsað sér að þau taki barnunga dótturina úr landi. Leikkonan og Aubrey hafa átt í útistöðum að undanförnu tengt barnfóstru Nöhlu og hefur málinu verið vísað til dómstóla. Samkvæmt fullyrðingum barnfóstrunnar hrinti Aubrey henni þegar hún hélt á barninu, þannig að hún féll við, en hann neitar allri sök. Fyrirsætan fyrrverandi hefur þó samþykkt að sækja tíma í reiðistjórnun til að reyna að læra að hemja skap sitt.
Samkvæmt upplýsingum á vef TMZ hefur Berry lagt inn formlega beiðni hjá dómstólum sem fjalla um málið þar sem hún óskar eftir heimild til að flytjast með dótturina til Frakklands. Aubrey er að sögn mjög mótfallinn hugmyndinni enda telur hann að leikkonan ætli með því að hindra öll samskipti hans og Nöhlu.









