VÍS og Borgarleikhúsið í samstarf
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, undirrituðu í gær samstarfssamning á Stóra sviði Borgarleikhússins í leikmynd verksins Fanný og Alexander. Samningurinn er undirritaður í kjölfar farsæls samstarfs fyrirtækjanna undanfarin ár og er slík samvinna gríðarlega mikilvæg fyrir Borgarleikhúsið. VÍS er máttarstólpi hátíðarsýningar Borgarleikhússins Fanný og Alexander eftir Ingmar Bergman í leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Frumsýnt var á þrettándanum og hefur sýningunni verið einkar vel tekið og uppselt fram í mars. VÍS bauð viðskiptavinum sínum á fjórar sýningar verksins í janúar.
VÍS hefur verið einn af máttarstólpum leikhússins undanfarin ár og hefur samstarfið verið með eindæmum gott og farsælt. Það er afar ánægjulegt að þrátt fyrir erfitt efnahagsástand hafa flest fyrirtækin endurnýjað samninga nú í haust og ný jafnframt bæst við. Stuðningur þessara fyrirtækja gerir leikhúsinu kleift að halda áfram að bjóða upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá.









