Veröld/Fólk
| mbl
| 11.2.2012
| 0:03
| Uppfært
12.2.2012
21:12
Adele í viðtali við 60 mínútur
Bandarískir sjónvarpsáhorfendur fengu að heyra fyrstu tónana frá bresku söngkonunni Adele eftir aðgerð sem hún gekkst undir vegna særinda í raddböndum. Í næsta þætti af fréttaskýringaþættinum 60 mínútum er viðtal við söngkonuna og sést Adele syngja í auglýsingu fyrir þáttinn.
Adele mun annars koma fram á sunnudagskvöldið í beinni útsendingu þegar Grammy-verðlaunahátíðin fer fram. Einnig er búist við að hún fái nokkur af þeim verðlaunum sem veitt verða, enda hefur plata hennar, 21, fengið lofsamlega dóma víðsvegar um heim.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









