Lagerfeld biðst afsökunar

Karl Lagerfeld er umdeildur maður. stækka

Karl Lagerfeld er umdeildur maður. Getty Images

Þýski tískuhönnuðurinn Karl Lagerfeld hefur beðið afsökunar á ummælum sínum um söngkonuna Adele, en hann sagði hann vera of feita. „Ég vil segja við Adele að ég er stærsti aðdáandi hennar,“ sagði Lagerfeld, sem mun iðrast sáran.

„Stundum, þegar ein setning er tekin út úr viðtali, þá breytist merking hennar,“ bætti hann við.

Lagerfeld sagði í viðtali við breska blaðið Metro að hann vissi hvernig það væri að vera of þungur og vera undir stöðugri pressu fjölmiðla. „Ég grennti mig um 30 kíló fyrir tíu árum síðan og hef ekki bætt því á mig aftur,“ sagði tískukóngurinn granni.

„Adele er fögur stúlka. Hún er sú allra besta og ég get ekki beðið eftir næstu plötu hennar.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ummæli Lagerfelds um holdafar hafa vakið umtal. Eitt sinn sagði hann að öllum væri sama um horaðar fyrirsætur nema „feitum mömmum með kartöfluflögupoka í fanginu“.

Frétt Metro

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is