Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 11.2.2012
| 21:37
| Uppfært
12.2.2012
19:00
Tólf ára bjargaði ættaróðalinu
Tólf ára piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum er orðinn hetja innan fjölskyldu sinnar, ef ekki víðar, eftir að hann bjargaði ömmu sinni frá því að vera borin út úr húsi sínu, sem hafði verið í eigu fjölskyldunnar í þrjá ættliði.
Amma piltsins réðst í endurnýjun á húsinu sem varð til þess að hún réði ekki við afborganir á árinu 2010. Bjóða átti upp húsið 15. febrúar nk. en 5. janúar sl. setti pilturinn færslu inn á vefsvæði sitt. Þar sagði pilturinn að amma sín hefði gefið svo mikið til samfélagsins að hún ætti skilið að halda húsinu.
Í kjölfarið fór fólk að senda piltinum og fjölskyldu hans peninga, og tókst að safna 10.500 bandaríkjadölum, andvirði 1,3 milljóna króna, sem dugði til að greiða úr skuldum ömmunnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









