Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 11.2.2012
| 5:30
| Uppfært
7:00
Wood var boðið að spila með Zeppelin
Ronnie Wood, gítarleikari Rolling Stones, hefur greint frá því að hann afþakkaði boð um að ganga til liðs við hljómsveitina Led Zeppelin.
Wood sagði frá því í útvarpsþætti að gamli umboðsmaðurinn hans Peter Grant hefði boðið honum að spila með sveitinni á meðan hún kallaði sig The New Yardbirds, en Grant var einnig umboðsmaður þeirra. Wood hafnaði hins vegar boðinu þar sem honum fannst meðlimirnir vera „hópur bænda“.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









