„Ótrúlega íslenskur og svalur“
Nýtt tónverk eftir Jón Ásgeirsson var frumflutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi í dag. Píanóleikarinn Peter Máté flutti verkið ásamt sinfóníunni en Jón hefur lengi fylgst með ferli Máté og samdi verkið sérstaklega fyrir hann. Á efnisskránni var einnig ein vinsælasta sinfónía Beethovens, Sinfónía nr. 7, og Fingalshellir eftir Mendelssohn.
Tónleikarnir þóttu takast vel og í fréttatilkynningu er haft eftir einum tónleikagesta, Sólrúnu Svövu Kjartansdóttur, 11 ára, að píanókonsertinn hafi verið „ótrúlega íslenskur og svalur. Svona brjálað veður, myrkur og tröll.“
Jón Ásgeirsson tónskáld sótti tónleikana og mætti þangað ásamt fjölskyldu sinni. Hann var mjög ánægður. „Það var mikil upplifun að heyra Peter Máté og Guðmund Óla hljómsveitarstjóra ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja verkið í Hofi, þessu glæsilega húsi, þetta var frammistaða sem allir geta verið stoltir af,“ er haft eftir Jóni í fréttatilkynningu.









