Reisir styttu af forsetafrúnni

Carla Bruni-Sarkozy. stækka

Carla Bruni-Sarkozy. Reuters

Frakkar eru ekki sérstaklega spenntir fyrir því að tveggja metra há stytta verði reist af forsetafrúnni, Cörlu Bruni-Sarkozy. Bruni féllst á að sitja fyrir hjá myndhöggvaranum en segist ekki hafa gert sér grein fyrir að nafn hennar yrði tengt styttunni.

Það er Jacques Martin, bæjarstjóri í Nogent-sur-Marne, sem ætlar að reisa styttuna til minningar um allar þær ítölsku konur sem komu til bæjarins að vinna í verksmiðju.

En þegar dagblað eitt sagði frá hugmyndum bæjarstjórans um styttuna, sem á að kosta 80 þúsund evrur eða 13 milljónir íslenskra króna, urðu margir reiðir, þar á meðal ættingjar og vinir Bruni.

Bruni vann áður sem fyrirsæta. Hún situr enn fyrir stöku sinnum en tekur þó ekki greiðslu fyrir.

„Það er móðgun við þessar ítölsku verkakonur að láta forríka forréttindakonu verða andlit þeirra,“ segir einn andstæðingur styttunnar. Hann tekur þó fram að hann hafi ekkert á móti Bruni, en þarna sé verið að gera mistök.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is