Styttuþjófar herja á London

Mynd 1 af 3
Listaverki Barböru Hepworth var rænt úr Dulwich-garðinum og það selt í brotajárn. Reuters

Þjófagengi fara nú ránshendi um London og stela styttum úr málmi, bræða þær og selja í brotajárn. Verðhækkun á kopar, bronsi og öðrum málmum hvetur þjófana til ódæðisins.

Gengin hafa um nokkurra mánaða skeið stolið koparköplum og koparrörum en nú hefur lögreglan áhyggjur af því að þau séu að snúa sér að verðmætari hlutum, s.s. styttum í almenningsgörðum, á torgum og í kirkjugörðum.

Ekkert virðist þjófunum heilagt og hafa þeir m.a. stolið minnismerkjum um látna hermenn.

Bronsstyttu listakonunnar Barböru Hepworth var m.a. rænt í desember úr Dulwich-garðinum í suðausturhluta London. Lögreglan telur að styttan hafi verið brædd og að þjófarnir hafi í mesta lagi haft nokkur þúsund pund upp úr krafsinu fyrir brotajárnið en styttan var metin á um 100 milljónir íslenskra króna.

Verð á málmum hefur hækkað umtalsvert undanfarna mánuði. Í febrúar á síðasta ári fékkst metverð fyrir tonn af kopar eða um 10 þúsund pund, um 2 milljónir íslenskra króna.

„Þjófnaður á listaverkum er að verða að sjúklegum faraldri,“ segir Peter John, formaður bæjarráðsins í Southwark.

Og þjófarnir hafa tekið rennibrautir af róluvöllum, lok af holræsum, strætisvagnaskýli, garðhlið og svo mætti lengi áfram telja.

„Þjófnaður á hlutum úr málmi verður sífellt stærra vandamál í London og í raun alls staðar á Bretlandseyjum,“ segir David Chinchen, lögreglustjóri, en hann fer fyrir sérstakri sveit lögreglumanna sem er ætlað að uppræta þjófagengin.

Yfirvöld hafa sagt til greina koma að endurskoða lög og reglur um sölu og útflutning á brotajárni.

Gríðarlega mikil sala er á brotajárni í Bretlandi á hverju ári og er stór hluti hennar talinn fara fram á svörtum markaði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is