The Artist fékk sjö verðlaun
Þögla kvikmyndin The Artist fékk sjö verðlaun á bresku kvikmynda- og sjónvarpshátíðinni, BAFTA í kvöld. Myndin var meðal annars valin besta kvikmyndin. Hún hlaut alls tólf tilnefningar á hátíðinni.
Franski leikarinn Jean Dujardin sem leikur í The Artist var valinn besti leikarinn og Michel Hazanavicius besti leikstjórinn. „Hvað hefurðu eiginlega gert mér,“ sagði Dujardin er hann tók við verðlaununum í kvöld og beindi orðum sínum til leikstjórans Hazanavicius. „Þetta er allt þér að kenna.“
The Artist fékk einnig verðlaun fyrir besta handrit, bestu tónlist og bestu búninga.
The Artist er nú talin enn líklegri en áður til að sópa að sér verðlaunum á Óskarsverðlaunahátíðinni en þar fær hún tíu tilnefningar í ýmsum flokkum.
Meryl Streep var valin besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í Járnfrúnni, Iron Lady, en í myndinni leikur hún Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Streep missti skóinn sinn á leiðinni að taka við verðlaununum en breski leikarinn Colin Firth kom henni til bjargar. Streep lét uppákomuna ekki slá sig út af laginu. Því er spáð að hún fái Óskarinn fyrir hlutverk sitt í Iron Lady, en það yrðu þriðju Óskarsverðlaun hennar fyrir leik í aðalhlutverki.
Verðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki fóru til þeirra sömu og á nýafstaðinni Golden Globe-hátíð, þ.e. Christopher Plummer fyrir Beginners og Octaviu Spencer fyrir The Help.
Plummer er einnig tilnefndur fyrir hlutverk sitt til Óskarsverðlauna en hann er 82 ára gamall og því elsti leikari sem hingað til hefur hlotið BAFTA-verðlaun.
Hátíðin var haldin í Konunglegu óperunni í Lundúnum og er stærsta uppskeruhátíð kvikmyndaiðnaðarins í Bretlandi.









