Veröld/Fólk
| AFP
| 13.2.2012
| 8:20
| Uppfært
9:35
Dádýr og hrútur ganga í það heilaga
Dýragarður í suðvesturhluta Kína hyggst blása til brúðkaups á morgun, Valentínusardag. Brúðhjónin eru hrúturinn Chunzi og dádýrskýrin Changmao, en óhefðbundið samband þeirra hefur vakið nokkra athygli gesta dýragarðsins.
Samdráttur parsins hefur staðið yfir í nokkurn tíma og munu kynni þeirra vera orðin nokkuð náin. Fregnir af ástarsambandinu hafa vakið mikinn áhuga og flykkjast gestir í dýragarðinn til að sjá turtildúfurnar.
Gestir þurfa að inna sérstaka greiðslu af hendi vilji þeir vera viðstaddir brúðkaupið. Kínverskur líffræðingur hefur gagnrýnt þetta og varar við því að gefa dýrunum mannlega eiginleika. „Það besta í stöðunni er að láta þau í friði,“ sagði líffræðingurinn Wang Dajun í samtali við Xinhua-fréttastofuna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









