Glímdi við búlimíu
Lady Gaga fer ótroðnar slóðir í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og virðist geisla af sjálfsöryggi. En hún var ekki alltaf ánægð í eigin skinni. Á unglingsárunum glímdi hún við búlimíu og hafði mjög lélega sjálfsmynd.
Söngkonan var gestur á sjálfsstyrkingarráðstefnu ungra kvenna sem haldin var í Los Angeles á dögunum. Þar ræddi hún við sjónvarpsfréttakonuna Mariu Shriver, fyrrverandi eiginkonu Arnolds Schwarzeneggers, og upplýsti að hún hefði haft lítið álit á sjálfri sér í æsku. Hún hefði veri óánægð með útlitið og væri í raun ekki sérlega örugg með sig þótt sjálfsmyndin hefði vissulega breyst.
Sagðist Lady Gaga hafa kastað upp á unglingsárunum en hún hefði sem betur fer læknast af átröskunarsjúkdómnum. Lagði söngkonan áherslu á að sú mynd sem væri dregin upp af henni væri ekki raunveruleg. Hún væri ósköp venjuleg manneskja. Útlitsdýrkun væri mjög hættuleg og megrunaráróðnum yrði að linna.









