Sorg í bland við gleði á Grammy-verðlaunum

Jennifer Hudson söng I Will Always Love You. stækka

Jennifer Hudson söng I Will Always Love You. AP

Stemningin á Grammy-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi einkenndist af gleði í bland við sorg. Ákaft var fagnað þegar tilkynnt var um sigurvegara en þess á milli varð andrúmsloftið öllu alvarlegra þegar söngkonunnar Whitney Houston, sem lést á laugardaginn, var minnst.

Jennifer Hudson söng lagið I Will Always Love You, eitt frægasta lag Houston, og endaði það með því að segja „Whitney, við munum ávallt elska þig.“ Kynnirinn LL Cool J fór með bæn fyrir vini, ættingja og aðdáendur söngkonunnar og að auki minntust margir tónlistarmenn hennar í þakkarræðum sínum.

Söngkonan Adele var ótvíræður sigurvegari kvöldsins en hún vann til sex verðlauna, þ.á m. fyrir besta lagið og bestu plötuna. Hún söng lagið Rolling in the Deep og fékk standandi lófaklapp að flutningnum loknum en þetta var í fyrsta sinn sem hún kemur fram opinberlega eftir að hún gekkst undir aðgerð á raddböndum.

Foo Fighters unnu til fimm verðlauna, þ.á m. fyrir besta rokklagið og rokkplötuna. Bon Iver var valinn besti nýliðinn og besti dúettinn var valinn Body and Soul með Tony Bennett og Amy Winehouse. Foreldrar Winehouse, sem lést síðasta sumar, tóku á móti verðlaununum. „Lengi lifi Whitney Houston. Lengi lifi Amy Winehouse og lengi lifi Etta James,“ sagði Mitch Winehouse, faðir söngkonunnar. „Það er dásamleg stelpusveit þarna uppi.“

Lista yfir alla Grammy-verðlaunahafana má nálgast hér.

Myndasyrpa: Grammy-verðlaunin

Grammy verðlaunin voru afhent í Los Angeles í gærkvöldi.

Birtingardagur: Mánudaginn, 13. febrúar 2012

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is