Katy Perry fær að eiga köttinn

Þegar allt lék í lyndi á Grammy-verðlaununum fyrir ári. stækka

Þegar allt lék í lyndi á Grammy-verðlaununum fyrir ári. DANNY MOLOSHOK

Katy Perry og Russell Brand komust nýlega að samkomulagi um forræðið yfir kettinum þeirra.

Stjörnurnar tvær standa í skilnaði eftir 14 mánaða hjónaband og undirrituðu pappíra þess efnis þann 8. febrúar. Áður en þeir voru undirritaðir áttu þau fund þar sem þau ræddu hinar ýmsu hliðar skilnaðarins á nýju heimili Russells í Hollywood Hills.

„Hún fékk köttinn sem þau áttu saman og hann var sammála um að hún ætti að hafa forræði yfir honum,“ sagði heimildarmaður við tímaritið Grazia. „Katy var skiljanlega gráti næst á fundinum. Hún faðmaði Russell innilega og óskaði honum góðs gengis með allt. Hún reyndi að sýna stillingu en brast í grát um leið og hún settist upp í bíl og grét úr sér hjartað.“ Kötturinn ber nafnið Krusty en Russell á einnig annan kött sem ber nafnið Morrissey.

Heimildir herma að Katy hafi jafnframt nýtt tækifærið til að skila skartgripum sem hún fékk að gjöf frá Russell. „Þetta var frekar stuttur fundur. Hún skilaði giftingarhringnum, sagði að hún gæti ekki horft á hann og vildi að hann tæki hann,“ bætti heimildarmaðurinn við. „Katy var alveg sama hvað hann kostaði, hún varð að losna við hann og Russell getur gert það sem honum sýnist við hann.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is