|
Monitor
| Cover Media
| 14.2.2012
| 22:25
| Uppfært
22:49
Taylor Swift myndi hlaupa og fela sig
Taylor Swift myndi "hlaupa og fela sig" ef líf hennar væri í hættu.
Söngkonan gaf nýverið út lagið Safe & Sound og á mánudag sendi hún frá sér myndband við lagið. Draugalega ballaðan er eitt laganna í myndinni The Hunger Games. Í myndinni, sem skartar meðal annars Jennifer Lawrence, eru börn sem verða að berjast til dauða. Taylor segist ekki hafa nóg hugrekki til lifa af slíkar aðstæður.
"Ég hef hugsað um þetta af því að þegar ég les bækurnar þá sekk ég svo djúpt í það sem ég er að lesa um og það verður til þess að ég set það í samhengi við það sem ég er að gera í lífinu. Ég sit jafnvel og hugsa: "Ætli ég gæti klifrað upp þetta tré?" "Gæti ég gert vopn úr þessu?" "Ef ég þyrfti að leita mér að fæðu, hvað myndi ég gera?"" sagði Taylor við MTV News. "Í hreinskilni sagt held ég að ég myndi bara vera sú sem hleypur og felur sig. Ég myndi frjósa. Það eru þrjár tegundir viðbragða við ótta, sumir flýja, sumir berjast en aðrir frjósa. Ég myndi einfaldlega frjósa."
Þegar Taylor var fengin til að semja lag fyrir myndina las hún strax metsölubækurnar sem myndin er byggð á en Suzanne Collins skrifaði þær. Hún festist samstundis í vísindaskáldskapnum um söguhetjuna Katniss Everdeen.
Ég varð ástfangin af persónunum og heiminum sem Suzanne Collins skapaði. Ég sökkti mér algjörlega í hann. Ég er svo spennt að sjá myndina. Ég er algjör aðdáandi."sagði kántrí-söngkonan. "Þegar ég fékk símtalið hélt ég að ég þyrfti að semja lag sem væri einskonar sigurlag en svo þegar ég las bækurnar hugsaði ég: "Nei, við þurfum að semja einskonar dauða-vögguvísu.""









