Var óafvitandi skráður fyrir 1.737 bílum
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fyrirskipað hollenskum stjórnvöldum til að greiða manni nokkrum tæpar 1,5 milljónir kr. fyrir hæg vinnubrögð sem ollu manninum vægast sagt verulegum vandræðum.
Steven Benito Romet tilkynnti í nóvember 1995 að ökuskírteini hans hefði verið stolið en það var ekki fyrr en í mars 1997 sem skírteinið var gert ógilt. Á þessu tæpa eina og hálfa ári tókst þjófunum að skrá 1.737 bíla á nafn Romets. Í hvert skipti sem einhver þessara bíla lenti í árekstri eða ökumenn þeirra gerðust sekir um umferðarlagabrot, þá fékk Romet sendan reikninginn og var nokkrum sinnum höfðað mál gegn honum. Á endanum lenti hann í skuldafangelsi.
Yfirvöld sviptu hann bótum þar sem þau álitu hann greinilega afar auðugan mann, miðað við þann fjölda bíla sem var skráður á nafn hans.
Mannréttindadómstóllinn sagði í niðurstöðu sinni að hollensk stjórnvöld hefðu haft afskipti af einkalífi Romet, með því að ógilda ekki ökuskírteini hans strax eftir að hann tilkynnti um þjófnaðinn.









