Karlakórinn Þrestir 100 ára
Karlakórinn Þrestir fagnar 100 ára afmæli á sunnudaginn kemur. Friðrik Bjarnason kennari, organisti og tónskáld stofnaði kórinn, en Friðrik hafði flutt í Hafnarfjörð árið 1908 og gert skurk í tónlistarlífi bæjarins, þar með talið nokkrar tilraunir til kórstofnunar.
Fyrstu tónleikar Þrasta voru haldnir á skírdag, 3. apríl 1912, í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði og voru söngmenn ellefu talsins. Friðrik var stjórnandi til ársins 1924, en hélt alla tíð mikilli tryggð við kórinn og til dæmis færði hann Þröstum að gjöf á 25 ára afmælinu árið 1937, lagið „Hafnarfjörður“, átthagasöng Hafnfirðinga, við ljóð konu sinnar, Guðlaugar Pétursdóttur.
Þrestir munu minnast afmælisins með ýmsum uppákomum allt árið, „enda í raun verið að fagna 100 afmæli karlakórastarfs á Íslandi, þó karlakórasöngur hafi í sjálfu sér verið við lýði á Íslandi mun lengur, eða í rúmlega 150 ár,“ segir í fréttatilkynningu.
Afmælisárið hefst með stórtónleikum í Eldborgarsal Hörpu á afmælisdaginn, 19. febrúar næstkomandi. Uppselt er á tónleikana. Þar munu Þrestir fyrst koma fram ásamt dægursveit og einsöngvurum.
Jónas Þórir, sem leikið hefur á píanó með Þröstum mörg undanfarin ár, verður við flygilinn, Kjartan Valdimarsson við hljómborð, Jón Elvar Hafsteinsson á gítar, Einar Scheving á trommur og Róbert Þórhallsson á bassa.
Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Bergþór Pálsson, Björgvin Halldórsson, Egill Ólafsson, Garðar Thór Cortes, Gissur Páll Gissurarson, Óskar Pétursson og Sigrún Hjálmtýsdóttir. Auk þess koma þeir Jóhann Sigurðarson og Örn Árnason mikið við sögu.
Eftir hlé koma svo til liðs við Þresti á sviði Eldborgar söngfélagar úr fimm karlakórum; Karlakór Hreppamanna, Karlakór Keflavíkur, Karlakór Selfoss, Karlakór Reykjavíkur og síðast en ekki síst Karlakór eldri Þrasta. Innan raða eldri Þrasta, auk eins söngbróður sem nú syngur með Karlakór Selfoss, er að finna sex kórfélaga sem sungu með Karlakórnum Þröstum á 50 ára afmæli kórsins, í Bæjarbíói árið 1962.
Þarna verður sumsé að finna karlakór sem telur yfir 300 manns; en auk þessa verður á sviðinu sinfóníusveit, sem Hjörleifur Valsson hefur sett saman.
Tónleikarnir verða undir stjórn söngstjóra Þrasta, Jóns Kristins Cortez en hann hefur verið kórstjóri Þrasta síðan haustið 1997.









