Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| AP
| 15.2.2012
| 18:59
Rafsígaretta sprakk í munni
Rafsígaretta sprakk í munni bandarísks manns svo hann hlaut alvarleg brunasár af. Þá missti hann einnig nokkrar tennur og hluta af tungunni. Svo virðist sem rafhlaðan í sígarettunni hafi sprungið með þessum afleiðingum.
Atvikið átti sér stað í Pensacola á Flórída. Maðurinn var í makindum sínum að „reykja“ rafsígarettuna á mánudagskvöldið er hún allt í einu sprakk uppi í munni hans. Slökkviliðsstjórinn á svæðinu segir að sígarettan hafi orðið að nokkurs konar eldflaug í munni mannsins.
Maðurinn notaði rafsígarettuna til að hjálpa sér að hætta að reykja. Ekki hefur verið gefið upp að hvaða tegund sígarettan var. Maðurinn er enn á sjúkrahúsi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









