|
Monitor
| mbl
| 15.2.2012
| 22:57
| Uppfært
16.2.2012
0:42
Seal gefur Klum rándýrar gjafir
Undanfarið hefur Seal sent Heidi Klum eins metra háa blómvendi í von um að vinna hana aftur á sitt band.
Í síðasta mánuði tilkynnti parið að sjö ára hjónabandi þeirra væri lokið þó svo að hvorugt þeirra hafi sótt um skilnað enn sem komið er.
Uppi hafa verið getgátur um það að þau muni taka saman aftur þar sem Seal virðist gera allt sem í hans valdi stendur til að heilla ofurfyrirsætuna þýsku.
Samkvæmt breska tímaritinu Grazia hefur Seal sent Heidi falleg blóm á hverjum degi. Þá hefur hann einnig keypt dýra listmuni, demants hálsmen og bíl að verðmæti 50 milljóna króna.
"Seal mun ekki hætta fyrr en í fulla hnefana," sagði heimildarmaður við tímaritið breska. "Hann notar nú öll sýn vopn og fær nýjar klikkaðar gjafahugmyndir á hverjum degi. Hann virðist ekki ætla að gefast upp fyrr en hann nær að sameina fjölskyldu sína á nýjan leik."
En ekki hefur reynst eins auðvelt að átta sig á því hvað Heidi er að hugsa en þó vilja heimildarmenn meina að þau hafi rætt það sín á milli að gefa sambandinu tækifæri á nýjan leik sérstaklega með það fyrir augum að þau eru að ala saman upp fjögur börn.
Þó er því haldið fram að hún sé ekki hrifin af því hvernig Seal hefur sýnt ást sína að undanförnu.
"Heidi hefur engin viðbrögð sýnt við þessum rausnarlegu gjöfum," er hermt eftir heimildarmanni.









