Auðmjúk Nicki Minaj

Nicki Minaj stækka

Nicki Minaj

Nicki Minaj býr yfir mikilli „auðmýkt“ þrátt fyrir að vera stórstjarna, segir Laurieann Gibson.

Gibson, sem er danshöfundur, vann með Minaj fyrir atriði þeirrar síðarnefndu á Grammy-verðlaunahátíðinni síðasta sunnudag. Þar flutti söngkonan fimm mínútna útgáfu af lögum sínum Roman‘s Revenge og Roman Holiday sem eru bæði að finna á plötu hennar Pink Friday: Roman Reloaded.

„Ég á auðvelt með að tengja við ástríðuna, þakklætið og auðýktina sem Minaj býr yfir,“ sagði danshöfundurinn við MTV News. „Sem lagahöfundur er Minaj einstaklega hæfileikarík, bæði þegar litið er á lög hennar og texta og það heillar mig. Hlutirnir eiga bara eftir að verða stærri og bjartari hjá henni og ég hlakka til að fá að taka þátt í því með henni.“

„Hún er svo full af lífi. Hún er svo skemmtileg. Hún fær mig til að hlæja,“ segir Gibson.

„Tíminn með henni og öllum listamönnunum sem tóku þátt í atriðinu var æðislegur. Það er svo yndislegt að taka þátt í svona atriði þegar allir sem taka þátt einfaldlega skína vegna þess að þau elska svo mikið það sem þau eru að gera. Hún er rapp-listakona og það er frábært að kona geti tekið þátt í samkeppninni á þeim stóra markaði.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is