|
Monitor
| mbl
| 16.2.2012
| 20:46
Bara algjör snilld
Í gærkvöldi frumsýndu MS-ingar söngleikinn Litlu hryllingsbúðina í Austurbæ. Þau Birkir og Lilja Eivor fara með aðalhlutverkin í sýningunni.
Um hvað er leikritið?
B: Það er um Símon sem er algjör aumingi og á ekkert. En svo finnur hann plöntu og eftir því sem hún stækkar og hann gefur henni meira fær hann meira, plantan gefur honum aukið vald.
L: Plantan er sumsé mannæta og Símon verður því hálfgerður morðingi þótt hann sé samt rosalega góður. Birkir leikur Símon og ég leik Auði en þau vinna bæði í blómabúðinni og eru ástfangin hvort af öðru. Auður á samt kærasta sem er klikkaður tannlæknir en hún er ekkert ánægð í því sambandi.
Hvernig týpur eru ykkar karakterar?
B: Símon er nörd og hefur ekkert sjálfstraust. Hann hlýðir herra Mússnik, eiganda blómabúðarinnar sem Símon vinnur í, út í eitt. Herra Mússnik tók Símon af munaðarleysingjahæli og ól hann upp sem einskonar þræl.
L: Hún Auður er alveg ótrúlega heimsk og glær en hún er mjög góðhjörtuð og vill engum illt.
Hvers vegna ætti fólk að skella sér á Litlu hryllingsbúðina?
L: Þetta er fáránlega flott sýning. Leikmyndin og allt í kringum þetta er mjög flott. Allir ættu að geta skemmt sér vel, bæði börn, fullorðnir og háaldraðir. Við fórum einmitt á elliheimili um daginn og sungum nokkur lög og fólkið þar hafði mjög gaman af þessu.
B: Ég tek undir orð Lilju. Þetta er skemmtilegt, fyndið og hefur upp á ótrúlega margt að bjóða. Þetta er bara algjör snilld.
Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.









