|
Monitor
| Cover Media
| 16.2.2012
| 23:00
Christina Ricci kvíðir fyrir nektarsenum
Christina Ricci hefur alltaf miklar áhyggjur fyrir nektarsenur en endar á að safna kjarki og slá til.
Leikkonan hefur leikið í bíómyndum síðan hún var tíu ára og hefur á ferli sínum prófað ýmislegt. Hún hefur afklætt sig fyrir nokkrar myndir sínar og segir það venjast illa.
„Mér finnst gaman að klæðast eins og strákur og vera í helling af fötum. Ég myndi helst alltaf vilja vera í fötum. Ég hef samt vanist þeirri staðreynd að stundum er ætlast til þess að ég sé til í að vera klæðalaus. Maður veit að það líður að þeim dögum, maður kvíðir fyrir því en neyðist þó til að safna kjarki og kýla á það,“ útskýrir hún. „Stundum gleymir maður að upptökuliðið sé þarna, það veltur á því hve langan tíma tökurnar taka.“
Christina leikur á móti Robert Pattinson í myndinni Bel Ami sem er byggð á bók eftir Guy de Maupassant. Robert fer með hlutverk Georges Duroy, sem rís til frægðar í París með því að blekkja sæg af ríkum konum.
Christina leikur Clotilde de Marelle og fékk talmeistara til að þjálfa breskan hreim. Henni þótti það erfitt og var Robert duglegur við að benda á villur í framburði.
„Já, ég var með hreimþjálfara sem vann með mér í tvær eða þrjár vikur. Ég var alltaf að klúðra því,“ sagði hún í viðtali við BBC Radio 1. „Við amerísku leikararnir erum bara mjög latir af því að við þurfum mjög sjaldan að vinna með einhvern framandi hreim. Ég hefði átt að vera betri í þessu fyrir. Rob var vanur að gera grín að mér og ég grínaðist með það sjálf.“









