|
Monitor
| mbl
| 16.2.2012
| 12:17
| Uppfært
12:33
Ég get allt
Benedikt Magnússon er heimsmethafi í réttstöðulyftu en kýs þó ekki að kalla sig kraftlyftingamann. Hann segir Monitor frá Arnold Classic, kaloríudagskammtinum og markmiðinu sínu að hanna fatalínu.
Benedikt Magnússon heldur í víking í blábyrjun næsta mánaðar þegar hann mætir til leiks á erfiðasta aflraunamóti heims, Arnold Strongman Classic. Mótið, sem er nefnt eftir sjálfum Schwarzenegger, fer fram í Bandaríkjunum en Benedikt tók einnig þátt í því árin 2006 og 2008. Hann segist hafa reynt að forðast það að fá viðurnefni innan síns bransa en að lokum festist nafnið „Benni tarfur“ við hann án þess að hann fengi rönd við reist. „Það er svo sem ekkert verra viðurnefni en hvað annað en mér fannst það samt ekki alveg passa við minn persónuleika að vera kallaður „tarfur“. Kannski er ég bara svoleiðis og þarf að lifa við það,“ segir þessi nautsterki viðmælandi og brosir út í annað.
Jón Páll átti sinn ódauðlega einkennisfrasa: „Ekkert mál fyrir Jón Pál.“ Átt þú einhvern sambærilegan frasa sem þú öskrar þegar þú klárar einhverja lyftu eða aflraun?
Já, það er víst þannig en ég áttaði mig ekki á því fyrr en mér var bent á það. Þegar ég svaraði spurningu fyrir lyftingar um hvað ég væri að fara að gera fannst mér ég alltaf skynja einhvern efa á mönnum og ég var orðinn leiður á því. Í staðinn fór ég að hughreysta þá með því að segja: „Þetta er allt í lagi, ég get allt.“ Þá fóru menn að segja það líka, að þeir gætu allt og að allir sem væru með mér gætu allt. Menn fóru að segja að það væri ekkert ómögulegt í kringum mig og það finnst mér voðalega fallegt að heyra. Svo ætli frasinn sé ekki bara: „Ég get allt!“
Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.
Mbl sjónvarp fylgir Benna til Bandaríkjanna á Arnold Classic þegar þar að kemur.









