Grafrán í dýrakirkjugarði

Franska lögreglan rannsakar nú stuld á hálsól hunds sem stolið var í dýrakirkjugarði í úthverfi Parísarborgar. Hálsólin, sem var grafin með hundinum, var alsett demöntum og er metin á 9 þúsund evrur, 1,5 milljónir króna.

Er talið að hálsólinni hafi verið stolið aðfaranótt 5. febrúar sl. Hundurinn, Tipsy, var í eigu eiginkonu bandarísks iðnjöfurs og var grafinn í dýrakirkjugarði í Asnieres-sur-Seine árið 2003. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er legsteinn hvutta úr marmara og á honum mynd af svörtum kjölturakka og rautt hjarta.

Bæjarstjórinn í Asnieres, Sebastien Pietrasanta, segir að það hafi komið sér á óvart hversu verðmæt ól hafi verið grafin með hundinum og segir að slíkar gersemar sé ekki að finna í öllum gröfum hunda og katta í kirkjugarðinum en alls eru um 3 þúsund dýr grafin þar. Auk hunda og katta eru grafnir apar, kindur, hross, kanínur og jafnvel ljón. Eitt þekktasta dýrið sem hvílir í garðinum er hundurinn Rin Tin Tin sem kom fram í meira en 20 Hollywood-kvikmyndum á þriðja áratug síðustu aldar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is