Lögreglan og þjófar í samstarf
Kaupmannahafnarlögreglan telur sig hafa fundið svarið við því hvað skuli gera þegar innbrotafaraldur geisar og ekki ræðst við eitt né neitt.
Svar lögreglunnar er að leita ráða hjá innbrotsþjófinum sjálfum.
Finn Bernth Andersen, talsmaður lögreglunnar segir að þeir þjófar sem verði gripnir glóðvolgir í umdæminu verði héðan í frá beðnir um að taka þátt í nafnlausri könnun um sérgrein sína.
Í umdæmi Sjálands lögreglunnar hefur geisað innbrotabylgja á sumum svæðum umdæmisins og hafa innbrot vaxið um 60% á einu ári. Með því að leita til innbrotsþjófanna er ætlunin að læra meira um það hvað fái þá til að framkvæma verknaðinn og hvernig þeir komi þýfi í verð.
Bernth Andersen sagðist viss um árangurinn af þessu nýja átaki þeirra. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná þessum fjölda niður,“ og vísaði þar í fjölda innbrota í umdæminu.
Ætlunin er að þessi nýjung í rannsóknarstarfi lögreglunnar muni standa í nokkra mánuði.









