|
Monitor
| Cover Media
| 16.2.2012
| 23:30
Rachel McAdams að gifta sig?
Leikkonan Rachel McAdams íhugar þessa dagana að giftast Michael Sheen.
Parið hefur verið saman í rúmt ár og er samband þeirra sagt standa styrkum stoðum. Tímaritið Star segir að þokkagyðjan, sem er 33 ára, líti nú til sögu Sheens í ástamálum en hann hefur aldrei verið í hjónabandi þrátt fyrir að vera orðinn 43 ára. Leikarinn átti í átta ára sambandi við Kate Beckinsale og saman eiga þau ellefu ára dóttur. Þau hættu saman árið 2003 og lét Kate hafa eftir sér að henni hefði þótt vandræðalegt að hann skyldi aldrei hafa beðið hennar.
Þegar sambandi Sheens og Beckinsale lauk tók hann saman við ballerínuna Lorraine Stewart og var með henni í sex ár án þess að festa ráð sitt.
„Rachel er núna á hátindi tilverunnar, hún myndi elska að giftast og eignast börn,“ sagði heimildamaður í samtali við tímaritið. „Ef Michael er staðráðinn í því að vera piparsveinn áfram neyðist hún til að taka erfiða ákvörðun, hvort hún eigi að halda í hann á hans forsendum eða leita annað.“
Rachel átti í ástarsambandi við hina stjörnu myndarinnar Notebook, Ryan Gosling, með hléum í nokkur ár en þau hættu endanlega saman árið 2007.









