Banderas hættur að leika rómanska elskhuga

Banderas og Griffith eiga sér flókið en einfalt leyndarmál. stækka

Banderas og Griffith eiga sér flókið en einfalt leyndarmál. DANNY MOLOSHOK

Antonio Banderas er sáttur við að hafa skilið við allt rómanska elskhugakjaftæðið.

Spænski leikarinn er hvað frægastur fyrir sjarma sinn og útlit ásamt því að hafa leikið ýmsar karlhetjur í myndum á borð við Evita og The Mask of Zorro. Nú er leikarinn orðinn 51 árs og segir hann það mikinn létti að hafa loks hrist af sér stimpilinn sem fékkst af hlutverkunum sem hann hefur farið með í gegnum tíðina.

„Ég get loksins komist undan þessu kjaftæði í sambandi við að leika rómanska elskhuga í sífellu,“ segir hann í viðtali við dagblaðið The Times.

Antonio kvæntist leikkonunni Melanie Griffith árið 1996 og útskýrir leyndarmálið á bak við farsælt hjónaband þeirra í viðtalinu. „Leyndarmálið okkar er eins flókið og það er einfalt: við elskum hvort annað. Við erum komin af skeiðinu þar sem við erum blinduð af ást, héldum okkur á braut ástarinnar í gegnum erfiða tíma og nú hefur okkur tekist að komast á skeið þar sem við verðum aftur ástfangin hvort af öðru trekk í trekk,“ segir Banderas.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is