Gólað á ólétta Jessicu Simpson

Óléttubumban náði ekki að redda Jessicu Simpson mat eins fljótt og hún vonaðist til. stækka

Óléttubumban náði ekki að redda Jessicu Simpson mat eins fljótt og hún vonaðist til. MARIO ANZUONI

Jessica Simspon vonaðist eftir að fólk sýndi sér meðaumkun fyrir að vera ólétt þegar hún var á veitingastað á dögunum.

Stjarnan kasólétta var að sögn glorsoltin þegar hún mætti á vinsælan mexíkanskan veitingastað í Santa Barbara á dögunum. Þegar hún mætti og uppgötvaði hve löng biðröð var á staðnum gekk hún í að athuga hvort það væri möguleiki fyrir hana að fá fljótari afgreiðslu en aðrir.

„Röðin er alltaf út á götu á þessum stað,“ sagði heimilidamaður í samtali við Star-tímaritið. „Jessica var greinilega of svöng til að bíða í röð eins og aðrir svo hún reyndi að labba fram fyrir röðina og athuga hvort einhver myndi sýna sér meðaumkun.“ Óléttan hjálpaði stjörnunni þó ekki í þetta sinn.

„Því miður fyrir hana varð allt vitlaust í röðinni og annað svangt fólk byrjaði að góla á hana,“ útskýrði heimildamaðurinn. „Þetta var mjög neyðarlegt. Að lokum fór Jessica aftast en endaði síðan á að fara á Taco Bell hinum megin við götuna.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is