Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 17.2.2012
| 17:18
| Uppfært
19:03
Þyngsti nýburi Bretlands
Stúlkubarn sem fæddist í Bretlandi fyrir þremur vikum er talið vera þyngsta barn sem fæðst hefur þar í landi en stúlkan vó rétt tæp 5,8 kíló. Að auki kom hún í heiminn með tvær heilbrigðar tennur.
Það tók móður stúlkunnar, Gemmu Tevendale, um 44 mínútur að fæða barnið og kemur fram í breskum fjölmiðlum að fæðingin hafi gengið vel fyrir sig.
Ekki er vitað dæmi um viðlíka stærð á nýfæddu barni í Bretlandi en sjálf segist móðirin halda að hollt mataræði á meðgöngu, einkum túnfiskur og reyktur lax þrisvar sinnum í viku, hafi aukið vöxt barnsins.
Stúlkan, sem er þriðja barn Tevendale, hefur mikla matarlyst og drekkur hún bæði af pela og brjósti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









