Ástin mín, hvar ertu?

Mynd 1 af 5
Innilegur koss í mannþrönginni á kjötkveðjuhátíðinni í Ríó. AP

Það er gömul saga og ný að á kjötkveðjuhátíðinni í Ríó hittist fólk í litskrúðugri göngunni, upplifir ást við fyrstu sýn, kyssist innilega en missir svo sjónar hvort á öðru í mannmergðinni - að eilífu. En nú er komin lausn á vandanum.

Á bloggi sem ber yfirskriftina „Litli hlébarði, hvar ertu?“ er hægt að lýsa eftir hinni nýfundnu - og glötuðu ást. Nafn bloggsins vísar í litskrúðuga búninga þeirra sem taka þátt í hátíðarhöldunum á kjötkveðjuhátíðinni.

Ástin blómstrar iðulega á kjötkveðjuhátíðinni í Ríó í Brasilíu. Í fimm daga er tónlistin á götum úti í botni, áfengið flæðir um æðar gesta og milljónir fáklæddra líkama snertast í troðningnum. Sumir hafa það markmið að kyssa sem flesta en í einstaka tilvikum kviknar magnaður ástarblossi sem erfitt er að slökkva. Sagan segir að mörg hjónabönd eigi rætur að rekja til hátíðarinnar en líklega orsaki hún jafnmarga hjónaskilnaði. Aðstandendur bloggsíðunnar „Litli hlébarði“ hafa meiri trú á því fyrrnefnda.

Dæmigerð færsla á síðunni er á þessa leið:

„Ég var ekki drukkin en ég sá samt sýnir á kjötkveðjuhátíðinni. Hann var dásamlegur, með krullað hár, klæddur eins og Litli prinsinn. Hann var einn og sennilega drukkinn en hann dansaði af þvílíkri gleði. Hann var algjört kraftaverk. Ég þorði ekki einu sinni að nálgast hann. Og svo hvarf hann.“

Stofnandi bloggsíðunnar kallar sig Lucy in the Sky with Diamonds og segist sjálf hafa leitað manns eftir hátíðina í fyrra. Hún lýsir kynnum sínum þannig: „Við hittumst í partíi á götunni. Við kysstumst. En gleymdum að skiptast á númerum.“

Bloggið hennar Lucy hefur víst hjálpað mörgum pörum þetta árið. Þá er bara spurning hvort töfrar stemningarinnar á kjötkveðjuhátíðinni voru að verki eða hvort ástin sé raunveruleg.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is